FRÍ heimsending á pöntunum yfir 20.000.-

Ókei bæ tvö

Hér er á ferðinni önnur bókin í Ókei bæ-bálkinum hans Hugleiks. Eins og í fyrstu bókinni eru sögurnar löðrandi í hryllingi, ást og sadisma. Hugmyndaflug Hugleiks virðist engin takmörk sett; hver saga er öðrum fyndnari og bókin í heild drepfyndin, í orðsins fyllstu merkingu, og lætur sér ekkert óviðkomandi. Þarna eru sögur af fyrirmyndarföður, risaeðlum, heimi dýranna, geimverum og Hugleiki sjálfum. Sem sagt: Eitthvað fyrir alla!

Mjúkspjalda.

56 síður.