frí sending á pöntunum yfir 20.000.-

Terms of service

Pantanir

Dagsson.is tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist.

Afhendingartími

Afhendingartími er að jafnaði 2-14 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað.

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Sendingakostnaður er samkvæmt gjaldskrá póstsins.    

Verð

24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Dagsson.is sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema við eigi og viðskiptavinur hafi óskað eftir afhendingarmáta sem telja má ódýrastan. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvuskeyti á netfangið dagsson@dagsson.is eða senda dagsson.is staðlað uppsagnareyðublað sem er að finna á vef Neytendastofu www.neytendastofa.is (þar sem jafnframt er að finna frekari upplýsingar um skilarétt), en í kjölfarið skal Dagsson.is láta viðskiptavini í té kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar. Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.

Greiðslur

Allar greiðslur fara í gegnum Paypal eða Korta, íslenskt kreditkortafyrirtæki sem tekur við öllum helstu kreditkortum.

Annað

Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila.